Nemaherferð Klappsins
Þegar kemur að fjárhagslegri hagkvæmi ferðamáta fyrir háskólanema skorar Klappið hæst á öllum prófum.

hugmyndavinna
Með tilkomu Klapp greiðslukerfisins opnuðust fleiri möguleikar fyrir nemendur til að kaupa tímabilskort í Strætó. Við aðlöguðum myndheim Klapp greiðslukerfisins að stórhuga stúdentum sem stunda nám í háskólum höfuðborgarsvæðisins og keyrðum í gang haustherferð sem talaði umbúðalaust um það hvaða hópur fær ein bestu kjörin á strætófargjöldum.



